Lifandi bókasamfélag.kemur bráðum

Hilla

Bókaklúbbar

Lifandi bókaþræðir

  1. Vikulegi boltinn, klúbburinn eða bollinn
  2. Allir fá áminningu
  3. Hver og einn meldar sig inn, allir sjá
Hittingar í Bookspeak: svaraðu hvort þú mætir
  1. Gefðu einkunn
  2. Staður fyrir öll bókameðmælin
  3. Haltu í söguna
Bókaklúbburinn í Bookspeak: bók mánaðarins með einkunn

Reglulegir hittingar

Skipulagðu vikulega hittinga — saumaklúbb, fótbolta eða kaffi. Hver og einn meldar sig inn og allir fá áminningu.

Fimmtudagsbollinn í Bookspeak: hver mæta
Forsíða Bookspeak: næstu hittingar og mæting
Nýr hittingur í Bookspeak með endurtekningu og áminningu

Bókaklúbburinn

Bókaklúbbsapp með öllum íslenskum bókum og þýðingum síðustu tíu ára. Bók mánaðarins, einkunnir hópsins og öll sagan ykkar.

Bók mánaðarins í Bookspeak með einkunn hópsins
Bókaklúbbshittingur í Bookspeak: hver mæta
Bókameðmæli í Bookspeak með einkunnum
Sagan í Bookspeak: allar bækur bókaklúbbsins með einkunnum

Spurt og svarað

Hvað er Bookspeak?
Bookspeak er einfalt íslenskt app fyrir bókaklúbbinn þinn. Hópurinn setur bók mánaðarins, hver meðlimur gefur sína einkunn og appið reiknar meðaltal hópsins. Bókameðmælin eiga sinn stað, öll sagan varðveitist, og reglulegir hittingar halda utan um hvenær þið hittist og hver mæta. Allt á einum stað, engar auglýsingar.
Fyrir hverja er Bookspeak?
Fyrir fjölskyldur og vinahópa sem hittast reglulega — bókaklúbba, saumaklúbba, prjónaklúbba, fótboltahópa og kaffihittinga. Það er líka hægt að setja inn einstaka hittinga.
Eru íslenskar bækur í appinu?
Já. Bookspeak er með allar íslenskar bækur og þýðingar síðustu tíu ára, og safnið stækkar jafnt og þétt. Þú leitar að titlinum, velur bókina og kápan fylgir sjálfkrafa — enginn handvirkur innsláttur. Þetta er einmitt það sem vantar í erlend bókaklúbbs-öpp á borð við Goodreads, Fable og StoryGraph, þar sem íslenskar bækur finnast illa eða alls ekki.
Er Bookspeak gott app fyrir bókaklúbb?
Já — Bookspeak er bókaklúbbsapp frá grunni. Hópurinn setur bók mánaðarins, hver meðlimur gefur sína einkunn og appið reiknar meðaltal hópsins. Goodreads-einkunn bókarinnar sést við hliðina á einkunn hópsins, bókameðmælin eiga sinn stað og öll sagan varðveitist.
Get ég flutt inn eldri bækur bókaklúbbsins?
Já. Þú hleður inn skjali með fyrri bókum hópsins — titli, mánuði, ári og einkunn — og Bookspeak finnur bækurnar, sækir kápurnar og raðar þeim í söguna. Bókaklúbbur sem hefur starfað í mörg ár byrjar því með allt sitt á hreinu í stað þess að byrja á núlli.
Hvað kostar Bookspeak?
Bookspeak er á leiðinni í App Store. Það verður frítt í beta og ódýrt eftir það — börnin fá frítt. Engar auglýsingar, hvorki núna né síðar, og gögnin þín eru aldrei seld.
Hvernig býð ég fólki í hópinn?
Þú sendir boðshlekk, til dæmis í skilaboðum. Sá sem fær hann sækir appið og er kominn beint inn í hópinn — engin leit að notendanöfnum og ekkert vesen. Það er líka hægt að bjóða með netfangi fyrir þau sem það kjósa.
Þurfa allir í hópnum að vera með appið?
Já. Hópurinn deilir sömu upplýsingum — bók mánaðarins, einkunnunum og því hver mæta — svo öll þurfa aðgang til að sjá og svara. Boðshlekkurinn kemur fólki inn á augabragði.
Get ég verið í mörgum hópum?
Já, eins mörgum og þú vilt. Fjölskyldan, bókaklúbburinn og saumaklúbburinn lifa allir í sama appi, hver með sitt svæði og sína meðlimi. Þú getur meira að segja verið í tveimur bókaklúbbum án þess að þeir blandist.
Hvernig virka hittingarnir?
Þú býrð til reglulegan hitting — fimmtudagskaffið, mánudagsboltann eða saumaklúbbinn — gefur honum nafn og tákn, og hver og einn meldar sig inn. Þú sérð strax hver mæta og hver eiga eftir að svara. Ný umferð byrjar sjálfkrafa.
Virkar Bookspeak fyrir saumaklúbb eða leshring?
Já. Saumaklúbbar, leshringir, prjónaklúbbar og fótboltahópar nota allir sömu hittinga-virknina: þú býrð til reglulegan hitting, gefur honum nafn og tákn, og hver og einn meldar sig inn.
Fæ ég tilkynningar?
Já. Appið lætur vita þegar nýr hittingur er settur inn og sendir áminningu áður en hann er, svo enginn gleymi sér. Þú getur alltaf slökkt á tilkynningum í stillingum símans.
Hver sjá það sem ég set inn?
Aðeins meðlimir hópsins þíns. Ekkert er opinbert, það er engin almenn leit að fólki og gögnin þín eru hvorki seld né notuð í auglýsingar.
Á hvaða tækjum virkar Bookspeak?
Bookspeak er iPhone-app sem kemur bráðum í App Store, og Android-útgáfa er líka á leiðinni. Appið er á íslensku og ensku.

Einfaldaðu hópinn þinn.

Sæktu íApp Store Kemur bráðum